Sáttamiðlun
Við lausn ágreinings getur komið til greina að leiða aðila saman með því markmiði að finna lausn sem hluteigandi geta sætta sig við. Sálfræðingur vinnur þá sem hlutlaus aðili að því að leiða fólk í átt að sameiginlegri lausn. Mikilvægt er að grípa ágreiningsmál áður en þau vinda upp á sig og verða að stærra máli og getur sáttamiðlun verið góð leið. Það þarf þó að skoða hvert tilfelli fyrir sig en sáttamiðlun á ekki við í öllum ágreiningsmálum.