Sambandserfiðleikar

Ástæður sambands/hjónabandserfiðleika geta verið fjölmargar og það sem erfiðleikarnir hverfast um sömuleiðis.  Margir sem leita sér aðstoðar hafa glímt við vandann nokkuð lengi án þess að viðunandi lausn hafi fundist. Stundum eru það erfiðar kringumstæður sem reyna mjög á sambandið s.s. tæpur fjárhagur eða veikindi, hjá öðrum kann það að vera ákveðin vandamál eins og drykkja eða önnur fíkn en hjá ansi mörgum kunna tilfinningar að hafa breyst, þær dofnað og fólk fjarlægst hvort annað eða tilfinningar hafa beinst að öðrum. Í öllum tilvikum skiptir það miklu að gera upp málin, hvort sem það leiðir til áframhaldandi sambúðar eða sambúðarslita.